Handverkið er í hávegum haft hér í Tungunum. Mikið er um að fólk selji beint frá býli, t.d egg, nautakjöt,svínakjöt og grænmeti. Húsfreyjan í Pjaxa er engin eftirbátur þeirra og framleiðir nú litla vermireiti fyrir þá sem vilja rækta pínulítið heima við, svo sem eins og gulrætur, radísur, blómkál ofl. Flott hjá henni.


