More...
« October 2010 | Main | February 2011 »
Það var skrítið veðrið í sveitinni okkar í gær. Sól, frost og moldrok ofan af öræfum. En allt þetta gerði tilveruna svolítið sjarmerandi.
Er hægt að biðja um það betra, logn og 3 gráðu frost, heitt kakó og flatkökur með hangikjöti. Gerist ekki þjóðlegra og það á rjúpnaslóð. Enda nutum við Gunný dagsins.
Það var sérkennilegt að sjá fjöllin okkar frá allt öðru sjónarhorni í dag, fyrst Miðfell, svo Bjarnarfell og að lokum Sandfell.
Fórum inn í Brúarárskörð í dag, minna varð úr veiði en áætlað var en gaman engu að síður.