Það er þvílíkt moldrok og í bland öskufall eftir því hvaðan vindurinn blæs að það hálfa væri nóg. Gleymdi að breiða yfir grillið og þið sjáið afraksturinn. Svona er þetta búið að vera í sumar, alveg sama hvað er skrúbbað og þvegið, ömurlegt.
Kíktum við á blómasýninguna í Hveragerði, flott sýning og mörg listaverk eins og sjá má hér, önnur myndin er af varðeldi hin af hundi ef einhver skyldi nú ekki fatta þetta.
Það er ekki að spyrja að hugmyndafluginu hjá hársnyrtinum sem býr hér i Pjaxa. Bletturinn var eitthvað fölur og lengi að taka við sér, þá skellti hún bara í hann strípum, svona asskkkk. flott, hvað finnst ykkur.
Já nú fer maður að sakna skemmtilegra karla, vélagnýs og kaffiilmsins úr kaffiskúr þeirra sem hér störfuðu. Þetta er búinn að vera skemmtilegur tími þó svo að margt hafi gengið á. Einn starfsmaðurinn fékk lag í óskaþætti hjá Gerði G. Bjarkling, hann valdi in the ghetto, ekki veit ég hvers vegna. Margir eru farnir til annanra starfa en aðrir fylgja kaffiskúrnum sínum sem hélt á brott í dag.
Bensínið búið bæði á mér og sláttuvélinni. Svo bilaði traktorinn, vantar fóðringar í drifskaftið en Gunnar á Leiðarenda er að fá samskonar stykki með mjólkurbílnum á eftir svo ég nýt góðs af. Gott að eiga góða nágranna.
Og sprettan bara sæmileg, kannske að maður setji bara fleiri á. Fyrsta skipti sem ég hef notað rykgrímu við slátt hér í Úthlíð, en allt á kafi í ösku í sverðinum. Já mörg er búmanns raunin.
Sá gamli flutti erindi um Kinn og Langatún og sýndi stöðu þeirra mála eins og hún er í dag. Óskin er sú að einn dag verði hægt að byggja hús fyrir ættina á Langatúni.