Svona ómaði rödd frá göngustígnum í dag, og hver veit, Hekla Björk mætt á svæðið.Og afi svaraði til baka. Við fórum í fótbolta, Gunný amma bakaði vöflur og svo horfðum við smá á Söngvaborg. Æðislegt.
Það var gaman að hitta þau loksins flest saman eftir langa fjarveru í útlöndum, það vantaði Brynju Sól. Guðmundur og Gunnar með sínar konur og börn og svo mætti Erla amma á svæðið líka. Við tókum nokkrar myndir og koma þær hér á eftir.
1.Hótelinu tjaldað 2.Stögin fest 3.Alsæl að verki loknu. 4.Þetta eru orðnir svo margir að það komust ekki allir við borðið. 5. Smáfólkið færði sig bara aðeins um set, og mér sýnist Hekla vera ánægð með frændur sína, Benna og Kristó.
Já þetta var skemmtilegur túr með Finna, Eddu, Sturlu Má og Þórdísi Ósk. Þau tvö síðastnefndu fengu bæði maríulaxana sína, alveg frábæt. En gilin eru torsótt og erfið yfirferðar, þannig að karlinn er aðeins lengur á leiðinni en allt gengur þetta samt.