Þetta skotgekk, fyrst fór gaflinn í og svo hver sperran á fætur annarri. Ekki vandamál að smíða golfskála, nú eða bílskúr eða hvað sem er. Hafið samband við Dodda í Úthlíð.
Það var mikill handagangur í öskjunni í dag þegar nýji skálinn var reistur á Úthlíðarvelli. Rétt er að taka fram að sá sem tók myndirnar var að vinna en sést því ekki á myndunum, nei segi svona.